Njarðvíkingar styrkja sig

Slavi Kosov er kominn til Njarðvíkur.
Slavi Kosov er kominn til Njarðvíkur. Ljósmynd/Njarðvík

Knattspyrnudeild Njarðvíkur hefur gengið frá samningi við búlgarska varnarmanninn Slavi Kosov.

Samningur leikmannsins gildir út komandi leiktíð. Kosov er 24 ára miðvörður, sem á fjóra leiki fyrir yngri landslið Búlgaríu.

Kosov hefur æft með Njarðvíkingum undanfarnar tvær vikur og heillaði þjálfarateymi liðsins. Hefur hann leikið í heimalandinu allan ferilinn til þessa. 

Njarðvík endaði í tíunda sæti 1. deildarinnar á síðustu leiktíð og hélt sér uppi á markatölu.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert