„Hefur reddað sínum liðum vinstri hægri“

„Ef þeim gengur vel þá er það frábært en maður spyr sig með þessa viðbót hvort þetta sé nóg,“ sagði Helena Ólafsdóttir, umsjónarmaður Bestu markanna, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild kvenna í knattspyrnu þegar rætt var um Fylki.

Fylki er spáð 8. sæti deild­ar­inn­ar í spá íþrótta­deild­ar Árvak­urs en liðið hafnaði í öðru sæti 1. deildarinnar á síðustu leiktíð og er nýliði í efstu deild.

Hefur reynslu af botnbaráttunni

„Gunnar Magnús Jónsson hefur reynslu af því að vera í botnbaráttu,“ sagði Helena.

„Hann hefur reddað sínum liðum vinstri hægri í gegnum tíðina og af hverju ætti hann ekki að geta gert það núna,“ sagði Helena meðal annars.

Upphitunarþátt Dagmála fyrir Bestu deild kvenna má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Fylkir er nýliði í Bestu deild kvenna í ár.
Fylkir er nýliði í Bestu deild kvenna í ár. mbl.is/Óttar Geirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert