Thomas Tuchel, þjálfari Bayern München, var æfur yfir ákvörðun dómarans undir lok síðari undanúrslitaleiks liðsins gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld.
„Þetta eru undanúrslitin, það er ekki tíminn fyrir afsakanir ef ég á að segja alveg eins og er. Það er ekki tíminn til að brjóta reglurnar á augljósan hátt og biðjast afsökunar eftir á. Krafan er leikmenn spili sinn besta leik, án mistaka. Þá verða dómararnir á þessu stigi að gera það sama og við ætlumst til af leikmönnum“.
Umdeild ákvörðun Szymon Marcinia dómara að flauta og dæma rangstöðu þegar Mathijs De Ligt var í þann mund að skjóta á markið var stærsti umræðupunkturinn eftir að Real Madrid tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Skot De Ligt hafnaði í markinu en búið var að flauta og samkvæmt reglum gat VAR þá ekki skorist í leikinn og skoðað atvikið. Real var þá nýbúið að snúa leiknum sér í vil með tveimur mörkum varamannsins Joselu og Bayern var í leit að jöfnunarmarki til að koma leiknum í framlengingu.
Þýsku blöðin Kicker og Bild eru sammála Tuchel og kalla atvikið skandal og stórslys.
Real Madrid mætir Borussia Dortmund í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.