Vilja fá Courtois í sumar

Thibaut Courtois.
Thibaut Courtois. AFP

Fregnir frá Spáni herma að Real Madrid vilji fá belgíska landsliðsmarkvörðinn Thibaut Courtois til liðs við sig frá Chelsea í sumar.

Courtois, sem er 23 ára gamall, myndi kosta Real Madrid 79 milljónir punda en sú upphæð jafngildir rúmum 14 milljörðum íslenskra króna. Samningur Belgans við Chelsea rennur út árið 2019 en hann kom til Lundúnaliðsins frá Atlético Madrid árið 2014.

Real Madrid er þar með búið að gefast upp á að fá David de Gea frá Manchester United en Spánverjinn gerði nýjan fimm ára samning við United í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka