Hazard bestur í ágúst

Eden Hazard fagnar marki fyrir Chelsea ásamt félaga sínum Willian.
Eden Hazard fagnar marki fyrir Chelsea ásamt félaga sínum Willian. AFP

Eden Hazard, belgíski sóknartengiliðurinn hjá Chelsea, var í morgun útnefndur besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í ágústmánuði.

Hazard hafði betur í baráttu við Antonio Valencia hjá Manchester United, Raheem Sterling hjá Manchester City og Curtis Davies hjá Hull sem einnig voru tilnefndir. Úrvalsdeildin stendur fyrir kosningu meðal almennings og í henni fékk Hazard 41 prósent atkvæða, Valencia 34 prósent, Sterling 17 prósent og Davies 8 prósent.

Hazard skoraði fyrir Chelsea í sigurleikjum gegn West Ham og Burnley en lið hans vann þrjá fyrstu leiki sína í deildinni í ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert