Hazard orðaður við Liverpool

Bræðurnir Eden Hazard og Thorgan Hazard fagna marki með Belgum …
Bræðurnir Eden Hazard og Thorgan Hazard fagna marki með Belgum á móti Kýpur í undankeppni EM. AFP

Belgíski landsliðsmaðurinn Thorgan Hazard, yngri bróðir Eden Hazard leikmanns Chelsea, er orðaður við Liverpool.

Belgíska blaðið Het Nieuwsblad greinir frá því að Liverpool sé að undirbúa 40 milljóna punda tilboð í Hazard sem er 5 milljón pundum hærra en Borussia Dortmund hefur boðið í Belgann. Hazard leikur með þýska liðinu Borussia Mönchengladbach.

Blaðið segir að forráðamenn Gladbach vilji frekar selja Hazard til Liverpool heldur en Dortmund en sjálfur lét Hazard hafa eftir sér á dögunum að hann myndi ganga í raðir Dortmund.

Hazard er 26 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður sem hefur spilað með Gladbach frá árinu 2014. Hann á að baki 19 leiki með belgíska landsliðinu og hefur í þeim skorað 3 mörk.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert