Hazard samdi til fimm ára

Eden Hazard.
Eden Hazard. AFP

Belginn Eden Hazard er orðinn leikmaður Real Madrid en bæði Chelsea og Real Madrid hafa staðfest vistaskipti leikmannsins.

Hazard hefur gengið frá fimm ára samningi við spænska stórliðið en hann hefur spilað með liði Chelsea frá árinu 2012 þar sem hann hefur verið í stóru hlutverki.

„Hazard fer frá Chelsea sem einn af bestu leikmönnum í sögu félagsins. Hann hjálpaði liðinu að vinna tvo Englandsmeistaratitla, að vinna Evrópudeildina í tvígang og ensku bikarkeppnina og ensku deildarbikarkeppnina einu sinni. Hann hefur verið kjörinn leikmaður ársins hjá Chelsea í fjögur skipti,“ segir í yfirlýsingu frá Chelsea.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert