Búið að handtaka Greenwood

Mason Greenwood var handtekinn í dag.
Mason Greenwood var handtekinn í dag. AFP

Lögreglan í Manchester hefur handtekið hinn tvítuga Mason Greenwood, knattspyrnumann Manchester United, vegna gruns um heimilisofbeldi og nauðgun.

Harriet Rob­son, kærasta leikmannsins, birti mynd­ir af sár­um sem hún seg­ir að sé eft­ir of­beldi frá Greenwood.

Á mynd­un­um má sjá stóra mar­bletti og blóðugt and­lit. Þá birti hún hljóðupp­töku þar sem maður, sem virðist vera Ma­son Greenwood, er að beita hana kyn­ferðisof­beldi.

Félagið hefur sett leikmanninn í bann og mun hann hvorki æfa né spila með liðinu á meðan málið er í rannsókn. Þá hefur lögregla tekið skýrslu af Robson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert