Besta Liverpool-lið sem ég hef séð

Leikmenn Liverpool fagna í leikslok í kvöld.
Leikmenn Liverpool fagna í leikslok í kvöld. AFP/Oli Scarff

„Þetta er besta Liverpool-lið sem ég hef séð,“ sagði Rio Ferdinand, fyrrverandi landsliðsmaður Englands í fótbolta, á BT-sjónvarpsstöðinni í kvöld.

Liverpool vann sannfærandi 2:0-heimasigur á Villarreal frá Spáni í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld.

„Þeir hætta ekki hvort sem þeir eru með boltann eða ekki. Pressan þeirra, orkan og allt saman er magnað að sjá. Þeir hljóta að setja stefnuna á að vinna fjórfalt,“ bæti Ferdinand við.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert