Alejandro Garnacho, leikmaður Manchester United hefur beðist afsökunar á því að líka við færslu sem gagnrýndi Erik ten Hag, knattspyrnustjóra liðsins á samfélagsmiðlinum.
Færslurnar voru um það hvað Garnacho væri mikilvægur leikmaður, hvað það hefði verið vitlaus ákvörðun að taka hann út af í hálfleik og kenna Garnacho um úrslit leiksins þegar United gerði 2:2 jafntefli við Bournemouth.
Garnacho likes a comment around Ten Hag. pic.twitter.com/xad9v3Ymj9
— UtdActive (@UtdActive) April 13, 2024
Erik ten Hag sagði á blaðamannafundi að hann hefði nú beðist afsökunar.
🗣️ "Alejandro is a young player. He apologised for it and after that we move on."
— Sky Sports News (@SkySportsNews) April 19, 2024
Erik ten Hag says Garnacho has apologised for likes on social media criticising his decisions ⤵️ pic.twitter.com/1V4vRQYdgI