Brasilíumaðurinn Antony, kantmaður Manchester United, hefur svarað fyrir sig eftir fagn hans beint fyrir framan leikmenn Coventry er United-liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik enska bikarsins í fótbolta um helgina.
Manchester United vann B-deildarlið Coventry í vítaspyrnukeppni eftir að Coventry kom til baka 3:0-undir og knúði fram framlengingu.
Er Rasmus Höjlund tryggði United sigur í vítaspyrnukeppninni fagnaði Antony fyrir fram leikmenn Coventry sem vakti mikla reiði.
Brasilíumaðurinn nýtti sér samfélagsmiðilinn X, áður Twitter, til að afsaka sig.
„Coventry sýndi hvers vegna liðið komst í undanúrslit. Við vildum komast í úrslitaleikinn fyrir stuðningsmenn okkar. Leikmaður þeirra kom illa fram við þá og á þessum tímapunkti vildi ég verja félagið mitt,“ sagði Antony.
Coventry proved why they reached the semi-final. We seeked this spot in the final for our fans and we achieved. The way our fans were treated by their player was not nice and I, in the heat of the moment, i've reacted to the provocations in a natural defense of my club! https://t.co/y3cz3UhzXf
— Antony Santos (@antony00) April 23, 2024