Stjörnur Manchester City æfðu ekki

Erling Haaland var fjarverandi í dag.
Erling Haaland var fjarverandi í dag. AFP/Paul Ellis

Knattspyrnumennirnir Erling Haaland og Phil Foden æfðu ekki með Englandsmeisturum Manchester City í dag. 

Manchester City mætir Brighton í ensku úrvalsdeildinni á fimmtudaginn kemur en liðið er í þriðja sæti með 73 stig, stigi frá Arsenal og Liverpool en á leik til góða. 

Haaland og Foden sáust ekki á æfingu í dag en Haaland fór meiddur af velli gegn Real Madrid í Meistaradeildinni á miðvikudaginn fyrir viku. Var hann síðan ekki með liðinu er það tryggði sér sæti í úrslitaleik enska bikarsins með sigri á Chelsea, 1:0, um helgina. 

Foden lék hins vegar allan þann leik en var ekki sjáanlegur á æfingu í dag. 

Phil Foden var einnig fjarverandi.
Phil Foden var einnig fjarverandi. AFP/Ben Stansall
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka