Hefur ekki áhyggjur af starfi sínu

Erik ten Hag hefur litlar áhyggjur af starfi sínu.
Erik ten Hag hefur litlar áhyggjur af starfi sínu. AFP/Adrian Dennis

Erik ten Hag, knattspyrnustjóri karlaliðs Manchester United, hefur ekki áhyggjur af starfi sínu. 

Manchester United hefur ekki fagnað góðum árangri á yfirstandandi tímabili en liðið er í áttunda sæti deildarinnar. Þó er liðið komið í úrslitaleik bikarsins. 

Manchester United fær topplið Arsenal í heimsókn á sunnudaginn kemur en á blaðamannafundi fyrir leikinn sagði ten Hag:

„Yfirmenn félagsins búa yfir almennri skynsemi,“ sagði ten Hag einfaldlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert