Fjölmargir Minecraft-leikmenn hafa endurskapað heima eða borgir úr öðrum tölvuleikjum innan Minecraft.
YouTube-stjarnan Yunatahel hefur nú vakið athygli Blizzards þar sem hann er að vinna í að endurskapa stórborgina Stormwind í Azeroth, World of Warcraft.
Yunatahel hleður reglulega upp World of Warcraft myndböndum og er þetta verkefni því ögn frábrugðið hans hefðbundnu myndböndum.
Verkefnið er enn í vinnslu og óvíst er hvenær borgin verði fullkláruð, en hægt að sjá það hér að neðan í myndbandi sem Yunatahel birti á Twitter.
Tístið vakti mikla athygli og svaraði Blizzard tístinu á frönsku.
„Get ekki beðið eftir að sjá lokaútkomuna,“ svaraði Blizzard á Twitter.