Staðfesta ráðningu Sainz

Renaultliðið var að staðfesta í þessu að það hefði ráðið Car­los Sainz sem öku­mann í stað Jolyon Pal­mer frá og með upp­hafi næstu keppn­istíðar, 2018.

Sainz er 23 ára og á að baki 53 mót í formúlu-1 frá því hann hóf keppni með Toro Roso í Mel­bour­ne 2015. Hef­ur hann unnið alls 100 stig í keppni en besti ár­ang­ur hans í keppni er að hafa komið fjór­um sinn­um á mark í sjötta sæti.

Áður en hann gekk til liðs við formúlu-1 varð Sainz meist­ari í Formula Renault 3.5 serí­unni árið 2014. Einnig varð hann meist­ari í Formula Renault 2.0 2011. Hann er son­ur marg­falds heims­meist­ara í ralli, Car­los Sainz eldri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert