Renaultliðið í formúlu-1 tekur nafnbreytingum eina ferðina enn og mætir til leiks undir merkjum Alpine A521, sportbílsins fræga og sigursæla frá Renault, á formúlutíðinni sem hefst undir lok mánaðarins.
Liðið svipti bíl sinn hulunni í gær en í stað gula litsins allsráðandi undanfarin ár er bíllinn nú aðallega í Alpinebláa einkennislit sportbílsins annálaða.
Ökumenn bílsins í ár verða Fernando Alonso hinn spænski og Frakkinn Esteban Ocon.