Framkvæmdastjóri KSÍ gerir ekki ráð fyrir því að Íslendingar fái fleiri miða á leiki á HM í Rússlandi en þau 8% sölumiða sem áður hafði verið greint frá. Miðað við það verða einungis 3200 Íslendingar á vellinum í Moskvu þegar Ísland mætir Argentínu í fyrsta leik 16. júní.
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, kveðst í samtali við mbl.is ekki hafa upplýsingar um hversu margir Íslendingar hafi sótt um miða í öðru söluferlinu vegna HM. Ferlinu lýkur á morgun en miðaumsækjendur fá að vita í síðasta lagi um miðjan mars hvort þeir fái ósk sína um miða uppfyllta.
Annar hluti miðasölunnar hófst 5. desember og engu máli skiptir hvort sótt var um þá eða í kvöld; allir fara í happdrætti þar sem dregið verður úr hverjir fá miða á þá leiki sem þeir sækja um ef ekki reynist nægt framboð af miðum.
Áður hefur verið greint frá því að íslensku flugfélögin, Wow air og Icelandair, muni reyna að ferja þá Íslendinga sem vilja fara til Rússlands. Skúli Mogensen, forstjóri Wow, sagði rétt eftir að dregið var í riðla í byrjun desember að loftbrú yrði á milli Íslands og Rússlands.
Auk þess eru nokkrar ferðaskrifstofur með pakkaferðir til sölu. Ferð á einn leik Íslands á HM í Rússlandi næsta sumar, þar sem gisting í tvær til þrjár nætur, flug, rútuferðir og eftir atvikum leiðsögn, er innifalið, gæti kostað á bilinu 200 til 250 þúsund krónur.