Courtois úr leik hjá Real Madrid

Thibaut Courtois.
Thibaut Courtois. AFP

Belgíski landsliðsmarkvörðurinn Thibaut Courtois kemur til með að missa af næstu leikjum Evrópumeistara Real Madrid.

Staðfest var úr herbúðum Madridarliðsins í dag að Courtois eigi við meiðsli að stríða í mjöðm og komi ekki til að spila næstu leiki liðsins.

Hann mun því ekki standa á milli stanganna í kvöld þegar Real Madrid mætir Leganes í spænsku bikarkeppninni og Belginn kemur til með að missa af deildarleikjunum gegn Real Betis og Sevilla.

Keylor Navas mun standa vaktina í markinu í fjarveru Courtois en mikill vandræðagangur hefur verið á liði Real Madrid. Liðið er í fimmta sæti spænsku deildarinnar og er tíu stigum á eftir toppliði Barcelona.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka