Cristiano Ronaldo leikmaður Ítalíumeistara Juventus gæti átt yfir höfði sér leikbann í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu.
UEFA er rannsaka fögnuð Ronaldos eftir að hann skoraði þriðja mark sitt í viðureigninni gegn Atlético Madrid í 16-liða úrslitunum í vikunni.
Ronaldo hermdi eftir hreðjafagni Diego Simeone þjálfara Atlético Madrid frá því í fyrri leiknum og Portúgalinn er sagður hafa öskrað ljót orð til stuðningsmanna Atlético Madrid og hann gæti verið úrskurðaður í leikbann fyrir þau.
Juventus mætir hollensku meisturunum í Ajax í átta liða úrslitunu Meistaradeildarinnar.