Danski knattspyrnumaðurinn Christian Eriksen fór í hjartastopp er hann hneig niður á Parken-vellinum í Kaupmannahöfn í fyrsta leik Dana á EM gegn Finnum í gær.
Morten Boesen, læknir danska liðsins, staðfesti þetta við fréttamanninn Mattias Karén. „Hann var dáinn, við náðum honum aftur með hjartastuðtæki. Hversu nálægt vorum við því að missa hann? Ég veit það ekki,“ er haft eftir Boesen.
Eriksen hneig niður undir lok fyrri hálfleiks og var óttast um líf hans. Eftir nokkra aðhlynningu komst hann aftur til meðvitundar og á spítala. Danska knattspyrnusambandið hefur sagt frá því að líðan hans sé stöðug og þá sendi leikmaðurinn liðsfélögum sínum kveðju í gærkvöldi.