Gleðin var við völd langt fram á nótt í Rómaborg og víða á Ítalíu eftir að Ítalir urðu Evrópumeistarar í fótbolta eftir sigur gegn Englandi á Wembley í gær.
Eftir spennuþrunginn úrslitaleik þar sem úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni brustu ítalskir stuðningsmenn í söng, féllust í faðma og einhverjir stigu dans, auk þess sem flugeldar fóru á loft, að minnsta kosti í Róm þar sem fagnaðarlætin stóðu fram á nótt.
„Ég mun muna eftir þessu alla mína tíð, allt mitt líf!“ hrópaði einn stuðningsmaður Ítala milli þess sem hann sendi fingurkossa út í loftið. Ljóst er að kórónuveiran var ekki ofarlega í hugum stuðningsmanna í fagnaðarlátunum.
Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Ítali því strax á 2. mínútu skoraði Luke Shaw huggulegt mark. „Við þjáðumst í byrjun en fórum okkar eigin leið, við unnum!“ sagði annar stuðningsmaður eftir sigurinn.
Þetta er í annað sinn sem Ítalía tryggir sér Evrópumeistaratitil karla í fótbolta en sá fyrsti kom árið 1968.