Ronaldo og Messi samherjar næsta vetur?

Cristiano Ronaldo og Lionel Messi eru komnir á seinni hluta …
Cristiano Ronaldo og Lionel Messi eru komnir á seinni hluta ferilsins og leika nú með Manchester United og París SG. AFP

Verða tveir bestu knattspyrnumenn heims undanfarinn áratug, Cristiano Ronaldo og Lionel Messi, samherjar á næsta keppnistímabili?

Þessu veltir netmiðillinn FootballTransfers upp í dag og segir að samkvæmt heimildum sé Ronaldo nú að leggja á ráðin um hvað hann eigi að gera að þessu tímabili loknu. Flest bendi til þess að hann vilji komast burt frá Manchester United, nái liðið ekki að vinna sér sæti í Meistaradeild Evrópu, og París SG sé efst á óskalista hans.

Nær útilokað sé hinsvegar að hann snúi aftur til Juventus, eða til uppeldisfélagsins Sporting Lissabon.

Gangi þetta eftir gæti PSG stillt upp sóknarlínu með Ronaldo, Messi og Neymar á næsta keppnistímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert