Messi mótherji Ronaldo í fyrsta leiknum?

Cristiano Ronaldo og Lionel Messi mættust ekki á HM í …
Cristiano Ronaldo og Lionel Messi mættust ekki á HM í Katar en andlit Messi blasti við á fána á vellinum þegar Ronaldo fagnaði marki gegn Gana í riðlakeppni mótsins. AFP/Manan Vatsyayana

Cristiano Ronaldo gæti mætt sínum gamla keppinauti, Lionel Messi, í fyrsta leik sínum með sádiarabíska liðinu Al Nassr.

Ekki er ljóst hvenær Ronaldo getur leikið með liðinu í sádiarabísku deildakeppninni þar sem hann á eftir að taka út leikbann sem hann tók með sér frá Englandi. Enn fremur á Al Nassr eftir að losa sig við einn erlendan leikmann úr sínum hópi til að geta skráð Ronaldo til leiks með félaginu.

Al Nassr á að mæta frönsku meisturunum París SG í sýningarleik í Riyadh eftir tæpar tvær vikur, fimmtudaginn 19. janúar. Messi er sem kunnugt er leikmaður PSG og þeir Ronaldo gætu því mæst á vellinum, eins og þeir gerðu jafnan á Spáni í rimmum Barcelona og Real Madrid á sínum tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert