Fimmtán stiga refsing Juventus dregin til baka

Juventus fékk 15 stig á töfluna í dag.
Juventus fékk 15 stig á töfluna í dag. AFP/Alberto Pizzoli

Ítalska stórliðið Juventus hefur fengið stigin fimmtán sem dregin voru af því snemma á tímabilinu til baka, eftir að áfrýjun félagsins skilaði árangri.

Voru stigin dregin af liðinu vegna brota á hinum ýmsu fjárhagsreglum ítölsku A-deildarinnar, en félagið áfrýjaði niðurstöðunni, með áðurgreindum árangri. 

Juventus fór því úr sjöunda sæti og upp í það þriðja, þar sem liðið er með 59 stig, 16 stigum á eftir toppliði Napólí.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert