Enski fótboltaþjálfarinn Graham Potter er orðaður við hollenska stórveldið Ajax. Potter hefur verið án starfs eftir að sjö mánaða samstarfi hans og Chelsea lauk vorið 2023.
Potter ku vera spenntur fyrir að taka við nýju liði og Ajax er að leita að framtíðarmanni í stað John Van’t Schip sem er bráðabirgðarþjálfari liðsins út tímabilið. Ajax situr í 5. sæti hollensku úrvalsdeildarinnar og gæti misst af Evrópusæti. Tækifærið að lyfta Ajax aftur á toppinn í Hollandi gæti höfðað til Potter.
Íslenski landsliðsmaðurinn Kristian Nökkvi Hlynsson leikur fyrir Ajax, sem og Jordan Henderson fyrrum fyrirliði Liverpool.