Hinn 19 ára gamli Arda Güler var hetja Real Madrid er liðið tók stórt skref í áttina að spænska meistaratitlinum með útisigri á Real Sociedad í gærkvöldi, 1:0.
Tyrkneski landsliðsmaðurinn skoraði sigurmarkið á 29. mínútu með sínu fyrsta marki fyrir Real Madrid.
Real er nú með 84 stig, 14 stigum meira en Barcelona en Börsungar eiga leik til góða. Real á fimm leiki eftir og Barcelona sex.