Gísli og Birnir í öðru sæti í Svíþjóð

Gísli Eyjólfsson
Gísli Eyjólfsson Ljósmynd/Halmstad

Halmstad, félag Gísla Eyjólfssonar og Birnis Snæs Ingasonar, er í öðru sæti í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir góðan útisigur á Värnamo í dag.

Halmstad komst tveimur mörkum yfir eftir einungis sex mínútna leik í dag. Þriðja markið leit dagsins ljós á fertugustu og fjórðu mínútu.

Gísli kom af varamannabekknum á 69. mínútu en Birnir sat allan tímann á bekknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert