Sveindís sneri aftur

Sveindís Jane Jónsdóttir mætti aftur á fótboltavöllinn í kvöld.
Sveindís Jane Jónsdóttir mætti aftur á fótboltavöllinn í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir sneri aftur á fótboltavöllinn í kvöld er Wolfsburg vann öruggan 5:1-heimasigur á Köln í efstu deild þýska boltans.

Sveindís meiddist á öxl í landsleik Íslands og Þýskalands í síðasta mánuði og var óttast að sóknarkonan yrði lengi frá.

Meiðslin voru hins vegar ekki eins slæm og í fyrstu var óttast. Kom hún því inn á sem varamaður í kvöld á 58. mínútu.

Wolfsburg er í öðru sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir Glódísi Perlu Viggósdóttur og stöllum í Bayern München sem eiga einnig leik til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert