Mynd sem sögð er vera af líki knattspyrnumannsins Emiliano Sala, sem lést í flugslysi fyrr á árinu, hefur verið birt á netinu og er í dreifingu á samfélagsmiðlum. Málið krefst tafarlausrar rannsóknar lögreglu. BBC greinir frá þessu.
Lík Sala fannst í flaki flugvélar í Ermasundinu tveimur vikum eftir að hún hafði horfið í nágrenni Guernsey, breskrar eyju í Ermasundi.
„Við vitum af því að mynd sem sögð er vera af lík Sala hefur verið dreift á samfélagsmiðlum og okkur býður við því að einhver hafi gert þetta,“ segir talsmaður lögreglunnar í Dorset sýslu. „Við erum að rannsaka atvikið og vinnum með fjölda annarra að því að upplýsa það hvernig myndin var tekin og hver er ábyrgur fyrir henni.“
Á föstudaginn var tilkynnt að faðir Sala, Horacio Sala, hefði dáið eftir að hafa fengð hjartaáfall þremur mánuðum eftir dauða sonar síns.
„Fjölskylda Sala á greinilega mjög erfitt núna og ætti ekki að þurfa að þjást meira. Þessi svívirðilega myndbirting mun áreiðanlega valda þeim meiri þjáningum,“ segir talsmaður lögreglunnar í Dorset sýslu.
Sala hafði verið á leiðinni á leiðinni á fyrstu æfingu með Cardiff City þegar flugvélin brotlenti. Lík flugmannsins, David Ibbotson, er enn ófundið.
„Cardiff City FC tjáir viðbjóð sinn á þeim sem tóku myndina og dreifðu henni í hugsanaleysi. Þetta er óhæfuverk,“ segir talsmaður Cardiff.