KA sigraði í jöfnum leik

Hávörn KA tekur á móti Valdísi Unni Einarsdóttur úr Aftureldingu.
Hávörn KA tekur á móti Valdísi Unni Einarsdóttur úr Aftureldingu. Mbl.is/Kristín Hallgrímsdóttir

KA konur sigruðu Aftureldingu í úrslitum úrvalsdeildar kvenna í blaki í KA heimilinu í dag þar sem úrslit réðust í oddahrinu eftir endurkomu heimakvenna. KA leiðir einvígið 2:1.

Leikurinn í dag var æsispennandi en gestirnir úr Mosfellsbæ komust í 2:0 með því að vinna fyrstu tvær hrinurnar 25:22. KA sneri taflinu við og vann þriðju hrinu 25:23 og þá fjórðu 27:25 eftir upphækkun. Akureyringar höfðu betur í oddahrinunni 15:13 og tókst að verja heimavöllinn. 

Liðin mætast á nýjan leik á laugardaginn að Varmá en þar getur KA tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn.

Julia Bonet Carreras sækir að gestunum
Julia Bonet Carreras sækir að gestunum Mbl.is/Kristín Hallgrímsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert