Sló eigið Íslandsmet á Spáni

Baldvin Þór Magnússon bætti Íslandsmetið.
Baldvin Þór Magnússon bætti Íslandsmetið. Ljósmynd/FRÍ

Baldvin Þór Magnússon sló eigið Íslandsmet í fimm þúsund metra hlaupi á Spáni í gær og bætti það um rúmlega tólf sekúndur.

Kom hann í mark á 13:20,34 mínútum en gamla metið hans var 13:32,47 mínútur sem hann setti fyrir tveimur árum. 

Baldvin tryggði sér í leiðinni mikilvæg stig í baráttunni um að komast inn á Ólympíuleikana í París í sumar. 

Var Baldvin einnig hársbreidd frá því að tryggja sér inn á Evrópumeistaramótið í Rómarborg í sumar. Aðeins munaði 0,35 sekúndum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert