Fullt hús hjá Aroni og félögum

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Ljósmynd/Barcelona

Aron Pálmarsson og samherjar hans í Barcelona héldu sigurgöngu sinni áfram í spænsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld.

Barcelona sótti Granollers heim, sem er í öðru sæti deildarinnar og vann sjö marka sigur 30:23 eftir að hafa verið 14:9 yfir í hálfleik.

Aron skoraði 2 af mörkum Katalóníuliðsins, sem hefur unnið alla tólf leiki sína í deildinni og er með 9 stiga forskot á Grannollers.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert