Elvar öflugur í Skjern

Elvar Örn Jónsson.
Elvar Örn Jónsson. Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson

Elvar Örn Jónsson, landsliðsmaður í handknattleik, átti góðan dag þegar Skjern tók á móti Århus í efstu deild í Danmörku í dag. 

Skjern hafði betur 35:30 og var liðið yfir 19:17 að loknum fyrri hálfleik. 

Elvar Örn skoraði 5 mörk í leiknum og var með ágæta skotnýtingu en hann skaut níu sinnum á markið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka