FH getur komist í úrslit, ÍBV getur jafnað

Elmar Erlingsson sækir að FH-ingum í síðasta leik.
Elmar Erlingsson sækir að FH-ingum í síðasta leik. mbl.is/Óttar Geirsson

Allt er undir fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum í dag er liðið fær FH í heimsókn í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik. 

FH er yfir í einvíginu, 2:1, en þrjá sigra þarf til að komast í úrslitaeinvígið gegn Aftureldingu eða Val. 

FH vann fyrstu tvo leikina sannfærandi, 36:31 og 36:28, en í þriðja leik tókst ÍBV að vinna í Hafnarfirði, 29:28. 

Leikurinn hefst klukkan 17 í dag og verður í beinni textalýsingu á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert