Komast Haukar í úrslitaeinvígið?

Elín Klara Þorkelsdóttir hefur farið mikinn með Haukaliðinu.
Elín Klara Þorkelsdóttir hefur farið mikinn með Haukaliðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Með sigri á Fram í Úlfarsárdal í dag komast Haukar í úrslitaeinvígi Íslandsmóts kvenna í handknattleik. 

Valur, sem vann ÍBV 3:0, bíður í úrslitaeinvíginu en Haukaliðið er yfir, 2:0, eftir fyrstu tvo leikina. 

Haukar hafa unnið báða leikina hingað til eftir framlengingu. Fyrst 27:24 í Úlfarsárdal og síðan 28:25 á Ásvöllum. 

Leikurinn hefst snemma í dag eða klukkan 15 og verður í beinni textalýsingu á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert