Dagbjört semur við Val

Guðbjörg Sverrisdóttir, Ari Gunnarsson og Dagbjört Samúelsdóttir.
Guðbjörg Sverrisdóttir, Ari Gunnarsson og Dagbjört Samúelsdóttir.

Dagbjört Samúelsdóttir skrifaði í gær undir tveggja ára samning við körfuknattleiksdeild Vals. Hún kom til Vals frá Haukum þar sem hún hefur leikið allan ferilinn.

Dagbjört er 22 ára framherji og skoraði að meðaltali 7 stig í leik á síðustu leiktíð. Guðbjörg Sverrisdóttir framlengdi jafnframt við sama tækifæri samning sinn við Val til tveggja ára. Guðbjörg er 22 ára bakvörður og hefur verið í lykilhlutverki hjá Val síðustu fjögur árin. Hún spilar stöðu bakvarðar og var með 11 stig að meðaltali í leik, tók 6,6 fráköst og átti 4,5 stoðsendingar á síðustu leiktíð. Guðbjörg er í landsliðshópi Íslands og var í silfurliði Íslands á Smáþjóðaleikunum í júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert