Sú stigahæsta í Borgarnes

Carmen Tyson-Thomas leikur með Skallagrím á næstu leiktíð.
Carmen Tyson-Thomas leikur með Skallagrím á næstu leiktíð. Ljósmynd/Skallagrímur

Carmen Tyson-Thomas hefur skrifað undir samning við körfuknattleiksdeild Skallagríms og mun hún leika með liðinu á næstu leiktíð. Hún kemur til Skallagríms frá Njarðvík og var hún stigahæsti leikmaður Dominos-deildarinnar á síðustu leiktíð. 

Tyson-Thomas skoraði tæplega 37 stig að meðaltali í leik ásamt því að hún tók 16,5 fráköst. Það vakti mikla athygli þegar hún yfirgaf Njarðvík á síðustu leiktíð. Þrátt fyrir að vera með ákveðna yfirburði í liðinu var hún rekin frá félaginu vegna samskiptaörðuleika. Hún var m.a sökuð um að gera lítið úr liðsfélögum sínum, sem hún þvertók sjálf fyrir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert