Helena í frægðarhöll

Helena Sverrisdóttir í leik með landsliðinu
Helena Sverrisdóttir í leik með landsliðinu Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Körfuboltakonan Helena Sverrisdóttir verður tekin inn í frægðarhöll Texas Christian University í haust. Háskólinn tilkynnti fregnirnar á heimasíðu sinni. 

Helena lék fyrir háskólaliðið í fjögur tímabil árin 2007 til 2011 og hélt í atvinnumennsku í kjölfarið. Áður hafði hún orðið Íslandsmeistari í tvígang með Haukum.

Helena er stoðsendingahæsti leikmaður í sögu skólans, fjórða stigahæst og í fimmta sæti yfir flesta stolna bolta. 

4. október næstkomandi verður Helena heiðruð ásamt öðrum nýjum meðlimum frægðarhallarinnar en þetta þykir mikill heiður í bandarískum íþróttum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert