ÍR skrefi nær úrvalsdeild

Friðrik Leó Curtis átti góðan leik í dag
Friðrik Leó Curtis átti góðan leik í dag Ljósmynd/ÍR

ÍR-ingar unnu Sindra frá Höfn 83:75 í fyrsta leik liðanna í úrslitum um sæti í úrvalsdeild karla í körfubolta í Skógarseli í kvöld. Friðrik Leó Curtis átti stórleik í liði heimamanna.

Friðrik Leó skoraði 27 stig og tók 10 fráköst og Oscar Jörgensen bætti við 21 stigi. Í liði Sindra var Juan Luis Navarro með 24 stig og 10 fráköst og Samuel Prescott með 17 stig.

Liðin mætast að nýju á Höfn í Hornafirði á fimmtudaginn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert