Minnesota yfir í einvíginu

Anthony Edwards að fanga í nótt.
Anthony Edwards að fanga í nótt. AFP/Matthew Stockman

Minnesota Timberwolves leiða einvígið gegn Denver Nuggets eftir 106:99 útisigur í nótt í undanúrlitum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta.

Anthony Edwards átti frábæran leik og var stigahæstur fyrir gestina en hann skoraði 43 stig, tók sjö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Hann er aðeins 22 ára gamall en skoraði einnig 40 stig í síðasta leik Minnesota í úrslitakeppninni. 


Nikola Jokic var atkvæðamestur fyrir Denver en hann skoraði 32 stig, tók átta fráköst og gaf níu stoðsendingar en það dugði ekki til.

Liðin mætast aftur mánudaginn 6. maí klukkan 10.00 á staðartíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert