Jöfnuðu einvígið á útivelli

Luka Doncic átti góðan leik í nótt.
Luka Doncic átti góðan leik í nótt. AFP/Joshua Gateley

Dallas Mavericks hafði betur gegn Oklahoma City Thunder, 119:110, í öðrum leik liðanna í einvígi þeirra í bandarísku NBA-deildinni í körfubolta karla í Oklahoma í nótt. 

Dallas jafnaði þar með einvígið í 1:1 en fjóra sigra þarf til að tryggja sér sæti í úrslitaeinvígi Vesturdeildarinnar. 

Luka Doncic fór að vanda mikinn fyrir Dallas en hann skoraði 29 stig, tók tíu fráköst og gaf sjö stoðsendingar. 

Shai Gilgeous-Alexander átti þá stórleik fyrir Oklahoma en hann skoraði 33 stig, tók 12 fráköst og gaf átta stoðsendingar. 

Næstu tveir leikir liðanna fara fram í Dallas. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert