Tilfærsla á hlutabréfum Icelandair

Vél Icelandair
Vél Icelandair mbl.is

Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 hafa fært alla hluti sína í Icelandair Group hf. á einstaka deildir að því er fram kemur í flöggun til Kauphallarinnar. Heildareign sjóðanna er samtals 439.640.964 hlutir sem eru 8,79% af atkvæðum. Eftir skiptinguna fer Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins A-deild með 6,06% atkvæða, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins B-deild fer með 2,63% og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins sérdeild og Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga undir einu prósenti.

Velta með bréf Icelandair var rúmlega 2,7 milljarðar í Kauphöllinni í dag og lækkuðu þau um 0,03%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK