Dagsektir á smálánafyrirtæki

Neytendastofa hefur tekið ákvörðun um að Neytendalán ehf., sem rekur smálánafyrirtækin 1909, Múla og Hraðpeninga, eigi að greiða dagsektir að fjárhæð 20.000 krónur á dag þar til félagið bætir úr upplýsingagjöf á vefsíðum sínum.

Samkvæmt lögum ber fyrirtækjum að veita upplýsingar um sig á vefsíðum sínum þannig að neytendur eigi auðvelt með að átta sig á því hver stendur að baki síðunni.

Þetta eru upplýsingar eins og nafn, heimilisfang, kennitala og virðisaukaskattnúmer. Þar sem þessar upplýsingar er ekki að finna með fullnægjandi hætti á vefsíðum 1909, Múla og Hraðpeninga og Neytendalán hefur ekki orðið við kröfu Neytendastofu um að bæta upplýsingagjöf sína þurfa þau nú að greiða dagsektir þar til úr þessu verður bætt.

Hér má lesa úrskurðinn í heild.

Neytendalán ehf. var stofnað árið 2013.
Neytendalán ehf. var stofnað árið 2013. mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka