Smálán ehf. hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta en það sérhæfði sig í svokölluðum smálánum. Í Lögbirtingablaðinu í dag kemur fram að búið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta 21. september en skiptafundur fer fram 29. desember.
Fyrirtækið hefur verið nokkuð í umræðunni síðustu ár en árið 2014 höfðaði það ásamt smálánafyrirtækinu Kredía ehf. mál á hendur Neytendastofu. Fyrirtækin vildu láta ógilda ákvörðun áfrýjunarnefndar neytendamála sem snýr að útreikningi á heildarlántökukostnaði. Neytendastofa var sýknuð af kröfum fyrirtækjanna.
Fyrri frétt mbl.is: Smálánafyrirtæki í hart við Neytendastofu
Þá tók Neytendastofa ákvarðanir í maí um að sömu fyrirtæki, Kredía og Smálán, hefðu brotið gegn lögum um neytendalán við útreikning árlegrar hlutfallstölu kostnaðar og upplýsingagjöf til neytenda í tengslum við lán sem félögin veita neytendum.
Félögin kærðu ákvarðanirnar til áfrýjunarnefndar neytendamála og voru þær flestar staðfestar af nefndinni.
Fyrri frétt mbl.is: Staðfesti ákvarðanirnar að mestu leyti
Smálán ehf. er í 100% eigu DCG ehf. sem er í eigu Leifs Alexanders Haraldssonar. Fyrirtækið tengist Kredía nánum böndum en Slóvakinn Mario Megela er skráður stjórnarmaður og framkvæmdastjóri í báðum félögunum. Leifur Alexander stofnaði hinsvegar bæði félögin, Kredíu 2009 en Smálán 2012.