Ólafur Ólafsson segist ekki hafa hugmynd um hver eigi félagið Dekhill og hafi fengið hinn hlutann af hagnaðinum í tengslum við söluna á Búnaðarbankanum árið 2003. Þetta kom fram í Kastljósi á RÚV í kvöld.
Ólafur kom á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í dag þar sem hann reyndi að skýra sína hlið í tengslum við söluna. Ólafur var stjórnarformaður Eglu, stærsta einstaka aðila í kaupum S-hópsins svokallaða á tæpum helmingshlut í Búnaðarbankanum.
Ólafur staðfesti á fundinum að 4 milljarðar af söluandvirði hafi farið inn á hans reikning.
Þýski bankinn Hauck & Aufhäuser kom að kaupunum sem helmingseigandi í Eglu, en nefndarmenn bentu á að bankinn hefði aðeins verið eigandi í skamman tíma og það benti til að um málamyndagjörning hefði verið að ræða.
Ólafur sagði að franski bankinn Société Général hafi haft áhuga á því að vera með í þessu verkefni en hafi hætt við á haustdögum 2002. „Þeir vildu ekki vera með vegna pólitískra afskipta íslenska stjórnvalda.“
Eins og kom fram í fréttum í gær virðist sem félagið Dekhill Advisors, sem fékk hluta hagnaðarins af Hauck & Aufhäuser-fléttunni á móti Ólafi Ólafssyni, sé enn til. Ólafur kvaðst ekki geta svarað því hver ætti félagið. „Ég væri ánægður ef ég gæti sagt þér það.“
Hann var þá spurður að þú hvort hann væri að reyna að halda því fram að hann hafi fengið helming af hagnaði á móti fyrirtæki sem hann hefði ekki hugmynd um. „Dekhill er stofnað 2005 og það er alfarið á hendi samningsaðila, sem er Kaupþing, hvernig þeir ráðstafa þessu.“
Ólafur var þráspurður um hver hefði fengið hinn helminginn af fléttunni en sagðist ekki geta svarað því. „Ég hef ekki hugmynd um það.“
Ólafur sagðist aldrei hafa samið við fyrirtæki sem heitir Dekhill. „Ég samdi við stjórnendur Kaupþings. Spurðu stjórnendur Kaupþings og Hauck & Aufhäuser hvern þeir gerðu samning við. Ég hef ekki hugmynd um það.“