Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra sitja fyrir svörum á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis sem hefst klukkan níu.
Þar verður rætt um veru Íslands á gráum lista FATF yfir ríki sem þykja ekki hafa gripið til fullnægjandi aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Ísland var sett á listann fyrir helgi en auk þess bættust Mongólía og Simbabve á listann. Af listanum fara hins vegar Eþíópía, Sri Lanka og Túnis.
Íslensk stjórnvöld vonast til að landið komist af gráa listanum von bráðar, jafnvel strax í febrúar á næsta ári.
Hægt er að horfa á útsendingu af fundinum hér að neðan: