Hagnaður Rio Tinto, sem meðal annars á álverið í Straumsvík, nam 10,4 milljörðum Bandaríkjadala á síðasta ári. Fyrirtækið stefnir að því að verða kolefnishlutlaust árið 2050.
Stefnt er að því að draga úr kolefnislosun þess um 15% fyrir 2030. Þetta á við um eigin starfsemi Rio Tinto. Setja á um einn milljarð Bandaríkjadala í verkefni tengd loftslagsmálum næstu fimm árin. Meðal annars verði reynt að draga úr vatnssóun, virkja sólar- og vindorku frekar og draga úr mengun frá álframleiðslu Rio Tinto.
Í afkomutilkynningu Rio Tinto er fjallað um stöðu Ísal og erfiða stöðu áliðnaðarins á alþjóðlegum mörkuðum vegna lítils hagnaðar innan greinarinnar. Áfram verði unnið að því að reyna að gera álverksmiðjur félagsins arðbærari meðal annars með viðræðum um raforkuverði á Íslandi og Eyjaálfu. Vísað er til tilkynningar félagsins frá 12. febrúar en þar kom fram að Rio Tinto hyggst hefja sérstaka endurskoðun á starfsemi álversins í Straumsvík (ISAL) til að meta rekstrarhæfi þess til framtíðar og leita leiða til þess að bæta samkeppnisstöðu þess.
Neikvæð áhrif álversins í Straumsvík og Kitimat álversins í Kanada á rekstur Rio Tinto nam 68 milljónum Bandaríkjadala, sem svarar til 8,8 milljarða króna.
Vísað er til sölu á Isal til Norsk Hydro en hætt var við kaupin vegna ytri aðstæðna. Eftir það söluferli hafi félagið aftur verið sett í söluferli, en ekki hafi orðið sala úr því. Um mitt síðasta ár var álverið ekki lengur metið sem söluhæf vara hjá Rio Tinto.