Prófanir á 737 MAX-flugvélum Boeing munu hefjast í vikunni á vegum Flugmálayfirvalda Bandaríkjanna (FAA). Prófanirnar skipta sköpum fyrir Boeing sem stefna að því að koma vélunum aftur á loft á þessu ári.
737 MAX-vélarnar hafa ekki verið notaðar í farþegaflugi síðan í mars í fyrra eftir tvö mannskæð flugslys. Bandarísk flugmálayfirvöld sem og aðrar stofnanir hafa enn ekki gefið grænt ljós á að þær geti farið aftur í loftið.
Samkvæmt heimildum Reuters-fréttastofunnar snúa prófanirnar einkum að svokölluðum MCAS-hugbúnaði og munu flugmenn gera tilraunir á endurforritaðri útgáfu af honum, en hugbúnaðurinn er sagður meginorsakavaldur í báðum slysunum, þó margt annað hafi einnig spilað inn í.
Fyrirhugað er að prófanirnar hefjist á morgun og taki þrjá daga. Ef þær ganga að óskum má samt sem áður gera ráð fyrir frekari öryggisprófunum sem taka munu nokkra mánuði, auk þess sem flugmálayfirvöld í Evrópu og Kanada munu að öllum líkindum vilja framkvæma eigin prófanir.