Rio Tinto á Íslandi hf. hefur sótt um nýtt starfsleyfi fyrir álver ISAL í Straumsvík en núverandi starfsleyfi rennur út 1. nóvember 2020. Þetta kemur fram í frétt á vef Umhverfisstofnunar í gær.
„Þess skal getið til upplýsinga að heimilt er skv. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir að framlengja gildistíma starfsleyfis á meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu, að hámarki til eins árs, hafi fullnægjandi umsókn um nýtt starfsleyfi borist útgefanda.
Unnið er úr umsókninni og að gerð starfsleyfistillögu. Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin,“ segir á vef Umhverfisstofnunar.
Alþjóðlega námufyrirtækið Rio Tinto færði niður eignir fyrirtækisins vegna álversins um 269 milljónir bandaríkjadala, eða sem nemur 37 milljörðum íslenskra króna, í síðasta árshlutauppgjöri. Er þar um að ræða bókfærða eign vegna væntra tekna í framtíðinni. Telur fyrirtækið ekkert virði í slíkri eign lengur og hefur niðurfært virði hennar niður í ekki neitt.
Rio Tinto kærði í júlí Landsvirkjun til Samkeppniseftirlitsins og sagði raforkuframleiðandann hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína á raforkumarkaði. Kom jafnframt fram að ef Landsvirkjun léti ekki af „skaðlegri háttsemi sinni“ hefði Rio Tinto ekki annan kost en að íhuga að segja upp orkusamningi sínum og virkja áætlun um lokun. Sagði Rio Tinto jafnframt að fyrirtækið gæti ekki haldið áfram að framleiða ál hér á landi nema verðlagningin væri gagnsæ og sanngjörn.
Í framhaldinu svaraði forstjóri Landsvirkjunar því til að Rio Tinto hefði neitað að aflétta trúnaði af samningi sínum við Landsvirkjun. Iðnaðarráðherra hefur jafnframt tekið undir að rétt væri að samningurinn yrði gerður opinber, en Rio Tinto hefur hins vegar gefið upp að fyrirtækið telji ekki rétt að opna orkusamninginn nema önnur stóriðjufyrirtæki geri það líka.
Hópur stéttarfélaga starfsmanna sem vinna í álverinu í Straumsvík, það er að segja VM, Félag vélstjóra og málmtæknimanna, Rafiðnaðarsamband Íslands fyrir hönd FÍR og FRV, FIT, VR og Hlíf, vísuðu öll kjaradeilu sinni við Rio Tinto í Straumsvík til sáttameðferðar í júlí.