Eiríkur, Sigrún og Freyr til Sorpu

Eiríkur Örn Þorsteinsson, Sigrún Haraldsdóttir og Freyr Eyjólfsson.
Eiríkur Örn Þorsteinsson, Sigrún Haraldsdóttir og Freyr Eyjólfsson. Ljósmynd/Sorpa

Eiríkur Örn Þorsteinsson, Freyr Eyjólfsson og Sigrún Haraldsdóttir hafa verið ráðin til SORPU, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Eiríkur er ráðinn í starf sérfræðings í fræðslu og miðlun, Freyr í starf verkefnastjóra hringrásarhagkerfisins og Sigrún í starf verkefnastjóra á skrifstofu framkvæmdastjóra. Ráðningarnar eru hluti af aukinni áherslu SORPU á fræðslu og miðlun upplýsinga til almennings, þeirrar stöðu sem SORPA er í við innleiðingu hringrásarhagkerfisins á Íslandi og þeirra verkefna sem samlagið tekur þátt í á sviði úrgangsmála á höfuðborgarsvæðinu.

Eiríkur er grunnskólakennari frá Háskóla Íslands að mennt með áherslu á náttúrufræðiHluta af náminu tók hann í skiptinámi við Háskólann í Stokkhólmi. Eiríkur hefur starfað sem kennari í Vesturbæjarskóla og Laugalækjarskólaþjónustufulltrúi hjá Orkuveitu Reykjavíkur og starfsnemi hjá Íslandsstofu. Eiríkur er auk þess að ljúka meistaranámi í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum við Háskóla Íslands. 

Freyr hefur starfað sem samskiptastjóri hjá Terra og unnið að ýmsum verkefnum er varða flokkun og endurvinnslu. Hann á að baki áralanga reynslu í fjölmiðlum, lengst af sem frétta- og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV. Freyr er með meistarapróf í stafrænni stjórnun frá Hyper Island í Stokkhólmi, B.A. gráðu í mannfræði og almenn kennsluréttindi frá Háskóla Íslands.

Sigrún er með Bs. gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands. Sigrún starfaði sem Data engineering manager hjá CCP, teymisstjóri Novomatic og stýrði innleiðingu á tölvukerfum hjá Actavis og Festi.

Þau hafa öll þegar hafið störf hjá SORPU.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK